Skólinn Nemendur Foreldrar Námsver Nám og kennsla Tenglar Gallerý Álft

Forsíða

 

 
 

Gerum betur saman!
Þróunarverkefni skólaárið 2005 – 2006

Skólaárið 2005 til 2006 unnu kennarar Álftamýrarskóla að nokkrum þróunarverkefnum sem tengjast stefnumörkun um fjölbreytta kennsluhætti.

Kennarar unnu saman í teymum sem skipulögðu saman kennslu þar sem áhersla var lögð á fjölbreytni, virkni nemenda, sköpun, rannsóknarvinnu, tjáningu, hugsun (t.d. með umræðum og þrautalausnum) og samvinnu.

Mörg verkefnin tengdust markmiðum þar sem keppt var að því að efla ábyrgð nemenda á eigin námi, sjálfstæð vinnubrögð og val. Einnig var leitað leiða við að tengja saman viðfangsefni í mismunandi námsgreinum og að efla tengsl skóla við daglegt líf og umhverfi. Í mörgum verkefnanna skipuðu list- og verkgreinar stóran sess og eins byggðu mörg þeirra á að nýta upplýsingatækni. Kennarar sóttu námskeið í og hreyfimyndagerð og sjást þess merki í mörgum verkefnanna. Leiðbeinandi var Marteinn Sigurgeirsson

Kennararnir héldu upplýsingum um verkefnin til haga og skiluðu skýrslum um þau á innanhúsþingi sem haldið var 12. júní. Mat kennaranna var að vel hafi til tekist og að ástæða væri til að halda áfram að þróa kennslu með þessum hætti.

Verkefnið var unnið í samvinnu við Ingvar Sigurgeirsson prófessor við Kennaraháskóla Íslands sem var ráðgefandi um undirbúning og mat á verkefninu. Þórunn Traustadóttir deildarstjóri setti um þennan vef.

Hér eru kynningar á verkefnunum

Ég er furðuverk
1. óg 2. bekkur

Ótroðnar slóðir
3. - 4. bekkur

Byggjum okkur upp
Námsver

Norðurlönd
5. - 6. bekkur

Tölvuverkefni í 7. bekk
Greta Jessen

Klippt og skorið.
Námsver

Danska í 9. bekk
Erna Jessen

Hönnunarverkefni
Textíl/smíði

Hugsum áður en við hendum
Lífsleikniverkefni ætlað nemendum í 9. bekk

Út úr húsi
Vettvangsferð fyrir 9. bekk

Á vængjum álftarinnar
Hermann Norðfjörð

Meistarakokkar
Sesselja Traustadóttir

Saga og mynd
Oddgeir Eysteinsson - Þórhallur Runólfsson
   

Myndir frá kennaranámsskeiðinu

 

 

 

 

Hit Counter

Síðan var uppfærð 10.04.2008