.jpg)
1. mars
2008Við bekkjarfulltrúar
allra 1. og 2. bekkjanna stóðum fyrir diskóteki og
pizzupartýi fyrir
allan hópinn og fjölskyldur þeirra mánudaginn 25. febrúar
í sal skólans. Yfir
170 manns mætti og var svakalegt stuð, krakkarnir drógu
mömmur, pabba, ömmur,
afa, frænkur og systkini út á gólfið og stiginn var
dans af kappi og
farið í skemmtilega dansleiki. Mætingin var rosalega góð
og allir skemmtu sér
konunglega og fóru saddir heim eftir að hafa fengið sér
pizzur og svala !!!
Það er mikið gaman að
standa fyrir uppákomum sem allir taka svona virkan
þátt í !!
Kærar þakkir fyrir
samveruna !!
Kv. Bekkjarfulltrúar
myndir
18. febr.
Alþjóðadagur
Álftamýrarskóla var haldinn sunnudaginn 17. febrúar og tókst
alveg einstaklega vel. -
myndir
7. des.
Hefð er fyrir því
að 1. og 2. bekkur fari að sækja jólatré fyrir
Álftamýrarskóla. Föstudaginn 30. nóvember 2007 var
farið í hina árlegu jólatrésferð 1. og 2. bekks að sækja
jólatré fyrir skólann.
130 manns fóru saman í rútuferð í myrkrinu með spræka
jólasveina sem
bílstjóra, að finna tré fyrir skólann sinn, allir voru með
vasaljós til að lýsa leiðina í skóginum og jólasveinahúfur,
til að auka á stemminguna. Þrátt fyrir svolítinn kulda og
trekk þá gekk þetta allt saman mjög vel. Þegar búið var að
finna tré og höggva, fengu allir sér nesti.
Þetta var mjög skemmtileg ferð og kátir krakkar sem héldu
heim á leið þetta föstudagskvöldið.
Myndir úr ferðinni
26. nóv.
Fjölskyldudagurinn okkar tókst
rosalega vel og virkilega ánægjulegt hvað var vel mætt af
foreldrum, börnum, kennurum og öðrum góðum gestum !!
Nokkrir nemendur skólans voru með glæsilega dagskrá á sal
skólans, leikrit, söngur og hljóðfæraleikur og lúðrasveit
Austurbæjar kíkti í heimsókn
Mikið líf og fjör var svo á öllum vinnustöðvum sem voru í
nokkrum skólastofum, glæsilegir piparkökukarlar og kerlingar
voru skreyttar af kostgæfni
og listrænir hæfileikar fengu líka á njóta sín við að mála
jólakarla og jólastelpur í föndrinu og laufabrauðið sló
rækilega í gegn og var mikil örtröð
þar og líf og fjör eins og alls staðar, en þurfum greinilega
að gera ráð fyrir meira plássi næst !!
Fjáröflun 10. bekkjar gekk líka vel, það var allavega mikið
líf og fjör í kaffihúsinu þeirra og yndæliskræsingar í boði.
Við viljum þakka kærlega öllum sem lögðu okkur lið við að
gera þennan dag svona flottan og skemmtilegan, margar hendur
vinna létt verk !!
Flokkur foreldra sá um vinnustöðvarnar og kennarar
tónlistarskólans og Ásdís hjálpuðu okkur með dagskránna á
sal !!
Enn og aftur kærar þakkir til allra - þetta hefði ekki verið
hægt án ykkar !!
Bestu kveðjur - stjórn Foreldra- og kennarafélagsins
Valgerður, Elfur, Ragnheiður, Berglind og Birna
23. nóv
Dagskrá 1.
fundar BRÚAR - umræðuvettvangs um skólamál. Fundir
Brúarinnar eru að sjálfsögðu opnir foreldrum
12. nóv.
Fjölskyldudagur
Álftamýrarskóla !!
Fjölskyldudagurinn okkar í Álftó verður sunnudaginn 25.
nóvember n.k. kl.
13:00 – 15:00
Skemmtiatriði frá nemendum skólans.
Laufabrauð – piparkökur – jólaföndur
Fjáröflun 10. bekkjar og fleira skemmtilegt !!
Endilega takið daginn frá !! – Sjáumst í jólaskapi !!
Nánar auglýst síðar.
****************
Kæru foreldrar og forráðamenn
!!
Stjórn foreldra- og kennarafélagsins fékk sendar þessar
þrjár auglýsingar á
mismunandi viðburði sem eru í gangi og gætu verið
skemmtilegt fyrir t.d. bekkina að fara saman eða bara
fjölskylduna, við vildum allavega endilega leyfa öllum að
frétta af þessu !! Lápur og
Skrápur, Viðeyjarferð,
María
Bestu kveðjur,
Fh. Stjórnar Valgerður
8. nóv
Foreldraröltið er hafið í
samvinnu við Hvassaleitisskóla, búið er að senda tilkynningu
til forráðamanna barna í 7.-10. bekkjum. Listi með
nöfnum og dagsetningum er hér til hægri á
síðunni. Forráðamenn fá senda áminningu með tölvupósti/SMS.
30. okt
Foreldrafélagsfundur
8.okt. 2007
FUNDUR MEÐ
FORELDRAFÉLAGINU OG BEKKJAFULLTRÚUM ALLRA BEKKJA
ÁLFTAMÝRARSKÓLA.
25. okt.
Pistill formanns
Foreldrar, ef þið
viljið koma einhverju á framfæri þá vinsamlega að sendið tölvupóst
á fulltrúa í foreldraráði