|
Útikennsla - Umhverfisvitund – Útivera
Það er
nokkuð til í því sem við segjum stundum í gamni að
Álftamýrarskóli sé staðsettur á umferðareyju! Skólahverfið
afmarkast af miklum umferðargötum og töluverð ganga er í
næstu grænu svæði.
Í huga
starfsmanna skólans er það því góð áskorun að efla
umhverfisvitund nemenda okkar og gera útiveru að eðlilegum
hluta skólastarfsins. Vinna við að koma upp útikennslustofu
á skólalóðinni og bæta og fegra skólalóðina almennt hófst
formlega í maí 2006.
Með því að
auka vægi útikennslu í öllum námsgreinum og auka kennslu í
náttúru- og umhverfisfræðslu á vettvangi viljum við gera
nemendur meðvitaða um áhrif sín á eigin líðan og umhverfi
sitt. Við viljum hvetja þá til að taka sjálfa ábyrgð á
umhverfinu, þar með skólanum og skólalóðinni og hjálpa þeim
að skynja gildi hlýlegs og snyrtilegs umhverfis fyrir
vellíðan þeirra. Við vonumst til að þessi vinna stuðli að
aukinni útiveru og hollum lífsháttum nemenda og auki þannig
starfsgleði þeirra.
Umhverfisfræðslan og útikennslan er því í fullu samræmi við
einkunnarorð skólans; Ábyrgð – Ástundun -Árangur –
Ánægja.
|